Seðlabank Íslands hefur metið hvort nauðsynleg skilyrði þess að hægt sé að afnema gjaldeyrishöft séu til staðar og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en samkvæmt reglum um gjaldeyrismál ber að endurskoða þær eigi síðar en 1. mars 2009.

Þá kemur fram að næsta endurskoðun á reglum um gjaldeyrismál mun eiga sér stað eigi síðar en 1. september 2009, samkvæmt ákvæðum laga um gjaldeyrismál með síðari breytingum.

„Seðlabanki Íslands metur reglubundið skilvirkni gjaldeyrishaftanna í samhengi við peningastefnuna og vinnur að áætlun um afnám þeirra í áföngum,“ segir í tilkynningunni.

„Eitt af meginviðfangsefnum viðræðna stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem nú standa yfir er mat á því hvort forsendur þess að hægt sé gefa fjármagnsflutninga á milli Íslands og annarra landa frjálsa á ný séu fyrirhendi.“