Seðlabankar Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa gert tvíhliða gjaldeyrisskiptasamninga við Seðlabanka Íslands.

Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands.

Samningarnir eru viðbúnaðarráðstöfun og veita Seðlabanka Íslands aðgang að evrum gerist þess þörf. Hver samningur um sig veitir aðgang að allt að 500 milljónum evra gegn íslenskum krónum. Seðlabanki Íslands getur dregið á samningana þegar og ef nauðsyn krefur.

Ofangreindir samningarnir auka verulega aðgang Seðlabankans að erlendu lausafé og mun bankinn auka þann aðgang enn frekar á næstunni, segir á vef bankans.