Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hætta útgáfu tímarits bankans, Fjármálatíðinda. Síðasta hefti þeirra verður gefið út í ár og lýkur þá meira en fimmtíu ára sögu Fjármálatíðinda.

Í frétt Seðlabankans kemur fram að í upphafi var markmið ritsins að birta aðgengilegar upplýsingar og greinar um inn¬lend efnahagsmál og ritgerðir og umræður um hagfræðileg málefni. Í ritinu birtust jafnframt inngangsorð bankastjórnar og talnalegar upplýsingar um efnahagsmál. Með tímanum jókst hins vegar vægi fræðigreina og ritið varð á endanum sérhæft vísindarit með ritrýndum greinum um hagfræðileg efni. Þetta gerðist ekki síst vegna þess að Seðlabankinn hóf útgáfu Peningamála árið 1999 sem tóku m.a. að stórum hluta við fyrra hlutverki Fjármálatíðinda. Því breyttust for¬sendurnar fyrir útgáfu Fjármálatíðinda segir í fréttinni.

Þar kemur einnig fram að íslenskir fræðimenn skrifa nú gjarnan rannsóknarritgerðir á ensku með það fyrir augum að þær birtist í alþjóðlegum vísindaritum. Þótt útgáfu Fjármálatíðinda verði hætt ætti ekki að verða vandkvæðum bundið að koma á framfæri rannsóknum sem tengjast sérstaklega íslenskum efnahagsmálum og ekki eru taldar eiga erindi í alþjóðleg vísindarit. Auk vefrita háskólastofnana og annarra sem nú stunda hagfræðilegar rannsóknir á Íslandi gætu greinar um slíkar rannsóknir birst í vinnugreinaröðum Seðlabankans. Meðal annars með hliðsjón af framansögðu telur bankastjórn ekki lengur þörf fyrir útgáfu fræðilegs rits á borð við Fjármálatíðindi á vegum bankans.