Bankastjórn Seðlabankans hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 3,5%.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að mikil umskipti hafa orðið í íslenskum þjóðarbúskap undanfarnar vikur.

„Íslenska bankakerfið hefur ekki staðist þá raun sem erfið markaðsskilyrði og brestur á trausti á veraldarvísu í efnahagsmálum ásamt innlendri áhættusækni hafa skapað,“ segir í tilkynningunni.

„Margvísleg störf hafa horfið á augabragði, eftirspurn hnignað og væntingar eru með daufasta móti á alla mælikvarða mælt. Næstu áhrif brota bankalífsins verða erfið og samdráttur verulegur.“

Þá kemur fram að bankastjórnin hefur átt óformlegar viðræður við aðila vinnumarkaðarins og ýmsa fleiri að undanförnu og yfirfarið þessa alvarlegu stöðu, eins og það er orðað í tilkynningunni.

Niðurstaða bankastjórnar er því sú að lækka stýrivexti um 3,5% nú. Stýrivextir bankans verða því 12%.

Næsti vaxtaákvörðunardagur er 6. nóvember nk.