Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innláns­stofnana lækka í 6,5% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 7,75%. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga lækka í 8,0% og daglánavextir í 9,5%.