Öll dagleg uppgjör og innlend greiðslumiðlun Byrs sparisjóðs fer í gegnum Seðlabanka Íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Byr.

Þar kemur einnig fram að Byr hafi, á undanförnum árum, lagt ríka áherslu á sjálfstæði gagnvart öðrum fjármálafyrirtækjum.

Þá er bent á að þau endurhverfu viðskipti sem Byr eigi í, við Seðlabanka Íslands, séu eingöngu ríkisbréf en ekki skuldabréf annarra fjármálastofnana.

„Seðlabanki Íslands mun því ekki krefja Byr um auknar tryggingar þar sem um ríkisbréf er að ræða."