Seðlabanki Íslands hefur stigið fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta með því að heimila innstreymi erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga og útstreymi gjaldeyris sem kann að leiða af því í framtíðinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum en þetta þýðir að fjárfestar fá heimild án takmarkana til þess að skipta aftur í erlendan gjaldeyri söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í eftir 1. nóvember 2009. Fyrir höfðu erlendir aðilar fulla heimild til gjaldeyrisyfirfærslna vegna vaxtatekna og arðs af fjárfestingum hér á landi.

Í tilkynningunni kemur fram að gjaldeyrisinnstreymi vegna nýfjárfestingar verður breytt í krónur hjá fjármálafyrirtæki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins. Til þess að síðan verði heimilt að flytja fjármunina aftur úr landi þarf að skrá nýfjárfestinguna hjá Seðlabanka Íslands. Það mun gera bankanum kleift að fylgjast með innstreyminu og efla gjaldeyrisforðann með inngripum ef aðstæður leyfa.

Jafnframt ofangreindri breytingu hafa gjaldeyrisreglurnar verið endurbættar með það að leiðarljósi að draga úr misræmi og loka glufum sem notaðar hafa verið til að fara í kringum höftin.

Stærstu breytingar eru eftirfarandi og eru hér birtar eins og þær koma fyrir í tilkynningu Seðlabankans.

  • Undanþágur ýmissa aðila, t.d. sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja, fyrirtækja með fjárfestingarsamninga o.fl. hafa verið endurskoðaðar (14. gr. reglna um gjaldeyrismál).
  • Hreyfingar í krónum hafa verið takmarkaðar sérstaklega til þess að auðvelda framfylgd og koma í veg fyrir misnotkun á reglunum, sbr. 3. mgr. 2. gr. reglnanna.
  • Heimildir til endurfjárfestingar hafa verið auknar og framkvæmd þeirra gerð auðveldari, t.d. hvað varðar endurfjárfestingu arðs og gengishagnaðar, sbr. 1. mgr. 5. gr.
  • Settar eru auknar takmarkanir á fjárfestingu í öðrum eignum, til að draga úr möguleikum á því að sniðganga reglurnar, sbr. 6. gr. reglnanna.

„Þegar möguleikum til gjaldeyrisviðskipta er tengjast fjármagns-hreyfingum fjölgar kunna að opnast nýjar leiðir til þess að fara í kringum þau höft sem eftir verða. Því er nauðsynlegt að efla gjaldeyriseftirlit í því ferli,“ segir í tilkynningu Seðlabankans og tekið er fram að það hefur Seðlabankinn þegar gert með því að endurskipuleggja og efla starfsemi gjaldeyriseftirlits.

Þá kemur jafnframt fram að til að draga úr hættu á því að farið verði í kringum gjaldeyrishöftin ná heimildir til að flytja út fjármagn að nýju ekki til ákveðinna tegunda fjárfestinga, t.d. afleiðusamninga sem fjármagnaðir eru með lánsfé.

Þá kemur loks fram að næsti áfangi afnáms gjaldeyrishafta, þ.e. afnám hafta á útstreymi fjármagns, ræðst af því hvernig til tekst með þennan áfanga og framgangi efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.