Ný skipan verður tekin upp á morgun með gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans. Þannig verður lögð áhersla á að skapa eins virkan markað og eðlilega verðmyndun og kostur er.

„Til þess þarf góða umgjörð og gagnsæ viðskipti,“ segir í tilkynningu frá Seðlabankanum en undanfarnar vikur hefur verið stuðst við bráðabirgðaskipan gjaldeyrisviðskipta milli fjármálafyrirtækja á svonefndum tilboðsmarkaði Seðlabanka Íslands.

Í tilkynningunni kemur fram að Seðlabankinn hefur nánast verið eini seljandi gjaldeyris á þeim markaði. Gengið hefur mótast af kauptilboðum annarra og ákvörðun Seðlabankans hverju sinni.

Nú hefur Seðlabankinn sett reglur um gjaldeyrismarkað að höfðu samráði við fjármálafyrirtæki.

Reglurnar taka sem fyrr segir gildi á morgun, fimmtudaginn 4. desember 2008. Í þeim er gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki gerist viðskiptavakar með gjaldeyri.

Í tilkynningu Seðlabankans kemur fram að skilyrði um fjárhæðir og tíðni tilboða eru vægari en þau sem viðskiptavakar þurftu áður að uppfylla á millibankamarkaði.

„Er það bæði vegna þess að burðir þeirra til umfangsmikilla viðskipta eru minni nú og einnig er talið æskilegt að fleiri fjármálafyrirtæki verði viðskiptavakar en bankarnir þrír sem sinntu því hlutverki til skamms tíma,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Í fyrstu verða viðskiptavakarnir þrír, þ.e. NBI, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing, en þess er vænst að þeim fjölgi.

Þátttaka Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði er ekki útilokuð á næstunni

„Gengi krónunnar verður að ráðast af framboði og eftirspurn á markaði en ekki með sölu á gjaldeyri úr forða Seðlabankans,“ segir í tilkynningu bankans.

„Hin nýja skipan stuðlar að eðlilegri þróun. Þátttaka Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði er ekki útilokuð á næstunni. Komi til hennar mun hún miða að því að draga úr óhóflegum sveiflum en ekki að styðja eitthvert ákveðið gengi. Framfarir á skipan gjaldeyrismála byggjast á því að gjaldeyrir sem útflutningsgreinar afla skili sér til fjármálafyrirtækja og þau eigi viðskipti sín á milli á skipulögðum markaði. „

Eins og fram kom í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar Seðlabankans 28. nóvember sl. er raungengi krónunnar nú mjög lágt.

Seðlabankinn segir í tilkynningunni að snarpur viðsnúningur á viðskiptum við útlönd, aðhaldssöm peningastefna og reglurnar sem gildi tóku síðastliðinn föstudag eftir að Alþingi hafði breytt lögum um gjaldeyrismál er allt til þess fallið að styðja við gengi krónunnar.