Útboð verður haldið á tveimur flokkum ríkisbréfa fimmtudaginn 24. júlí klukkan 14:00 með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands.

Seðlabanki Íslands greinir frá þessu en tilkynnt var um áætlaða útgáfu ríkisbréfa, frá júlí til desember 2008, 10. þessa mánaðar.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að heildarfjárhæð útboðsins verði allt að 10 milljarðar króna að nafnverði í flokk RIKB 09 0612 og 6 milljarðar króna að nafnverði í RIKB 19 0226 flokkinn. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa verður heimilt að gera tilboð í útboðunum en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 28. júlí 2008.

Í útboðinu óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í RIKB 09 0612 með lokagjalddaga 12. júní 2009. Útistandandi fjárhæð er 25.505 m.kr. og lánstími er eitt ár. Einnig er óskað eftir tilboðum í RIKB 19 0226 með lokagjalddaga 26. febrúar 2019. Útistandandi fjárhæð er 29.080 m.kr. og er lánstíminn tíu ár.