Ársreikningaskrá veitti Kaupþingi heimild til að gera ársreikninga sína upp í evrum, en ekki á þessu ári eins og Kaupþing vildi heldur á því næsta. Seðlabankinn lagðist hins vegar alfarið gegn því að Kaupþing fengi heimildina, eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst. Kaupþing hefur sent stjórnsýslukæru til fjármálaráðuneytisins vegna niðurstöðu Ásreikningaskrár. Búast má við niðurstöðu ráðuneytisins í þessum mánuði.