Kvikmyndagerðarmaðurinn Gestur Valur Svansson hefur selt leikaranum Adam Sandler handrit sitt að kvikmynd. Í frétt Fréttablaðsins segir að samningar hafi verið undirritaðir í gær og í samtali við blaðið segist Gestur Valur vera mjög sáttur með sinn hlut. Þetta er hans fyrsta bíómynd í fullri lengd.

Myndin ber vinnuheitið The Last Orgasm, en samkvæmt samningum má Gestur ekki tjá sig nánar um söguþráð myndarinnar.

Gestur sér sjálfur um að skrifa handritið ásamt einhverjum meðhöfundum frá Hollywood, svo hann mun sitja sveittur við lyklaborðið næstu mánuði.