Donald Trump, tilvonandi forseti Bandaríkjanna, seldi öll hlutabréf sem hann átti í júní á þessu ári. Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal. Jason Miller, talsmaður Trump, greindi fjölmiðlinum frá þessu. Talsmaðurinn var spurður út í tengsl Trump við Boeing, en hann hafði átt hlutabréf í félaginu.

Einkaþota fasteignamógúlsins er að gerðinni Boeing 757, en hann hefur nýlega verið að furða sig á þeim kostaði sem fyrirtækið telst ætla að rukka fyrir nýju Air Force One forsetaþotuna.