Mark Holyoake, stjórnarmaður í Iceland Seafood hefur selt hluti í fyrirtækinu fyrir 769 milljónir króna. Um var að ræða 90 milljónir hluta fyrir 8,85 krónur á hlut. Fjöldi hluta Holyoake eftir viðskiptin eru 121.640.768.

Á síðustu mánuðum hefur hann selt í fyrirtækinu fyrir um hundruð milljóna króna.

Mark Holyoake tók sæti í stjórn Iceland Seafood International árið 2011.