Útboði á hlut ríkissjóðs Íslands í Reitum lauk í morgun. Fjárfestar óskuðu eftir að kaupa 73.010.000 króna hluta í félaginu, eða u.þ.b 9,9% af heildarhlutafé í Reitum. Þetta kemur fram á vef Landsbankans .

Sölugengi var ákveðið 83,30 krónur á hlut og heildarnafnverð samþykktra tilboða, eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða 6,38% af heildarhlutafé Reita.

Markaðssvið Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu.

Að loknu útboði á ríkissjóður ekki lengur eignahlut í Reitum.

Voru öll samþykkt tilboð boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.

Viðskiptadagur vegna útboðsins er í dag, 22. ágúst og greiðslu- og afhendingardagur verður á miðvikudaginn næstkomandi, 24. ágúst.