Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins seldi í dag hlutabréf í Skeljungi fyrir 67,7 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eftir söluna þá á Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 9,9% hlut í Skeljungi og er stærsti hluthafinn í félaginu.