Hátt í tuttugu hross seldust á hestasöludegi sem haldinn var í gær hjá hestamiðstöðinni Hestheimum.
Um tvö hundruð hestamenn mættu á sölusýninguna hjá Hestheimum en 60 hross voru á söluskrá.
Á vef Hestheima kemur fram að meðalverð reiðhests í dag er um 500.000 krónur og má því ætla að verslun dagsins hafi verið hátt í tíu milljónir króna.