Fjölskylda Amy Winehouse hefur selt hús hennar á uppboði fyrir andvirði um 3,2 milljóna bandaríkjadala. Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að aðeins fimm aðilar hafi tekið þátt í uppboðinu. Húsið er um 2.500 fermetrar á stærð með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, fataherbergi, líkamsrækt, hljóðveri og fleiru.

Eftir að söngkonan vinsæla féll frá hefur fjölskylda hennar meðal annars gefið út geisladisk með áður óbirtum upptökum söngkonunnar og stofnað góðgerðarsjóð fyrir ungmenni sem glíma við vímuefnavanda. Fjölskyldan reyndi einnig að selja hús Amy Winehouse en þegar það gekk ekki var það selt á umræddu uppboði.