Núðluveitingastaðurinn Noodle Station á Skólavörðustíg skilaði 13 milljóna króna hagnaði eftir skatta á árinu 2012. Samtals námu tekjur ársins um 91,7 milljónum króna sem er nokkur aukning frá árinu 2011 þegar salan nam 56,7 milljónum króna.

Staðurinn sem opnaði í byrjun árs 2011 hefur gengið vel en eigið fé rekstrarfélagsins var jákvætt um 21,2 milljónir eftir þessi tæpu tvö ár í rekstri. Skuldir félagsins námu samtals um 17,7 milljónum í lok árs 2012 en eignir um 38,9 milljónum. Helstu eignirnar eru fasteign sem er metin á 13 milljónir í bókum félagsins og handbært fé fyrir svipaða upphæð.