Pizza-Pizza ehf., móðurfélag Domino’s á Íslandi, hagnaðist um 456 milljónir króna á síðasta rekstrarári, samanborið við rúmlega 2,2 milljarða króna hagnað árið áður. Afkoma grunnrekstursins var svipuð milli ára, en stór hluti hagnaður síðasta árs kom til vegna sölu eigna til Domino’s í Bretlandi.

Velta félagsins nam 5,8 milljörðum. Eignir námu 1,3 milljörðum króna og eigið fé 703 milljónum króna. Birgir Örn Birgisson er framkvæmdastjóri Domino’s á Íslandi.