Síðustu lóðirnar sem boðnar voru til sölu af Reykjavíkurborg í Blesugróf hafa verið seldar og hefur borgarráð samþykkt úthlutun þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Lóðirnar eru samliggjandi númer 30, 32 og 34 og eru rúmlega 600 til 740 fermetra stórar. Viðmiðunarstærð húss fyrir hverja lóð er á bilinu 275 til 300 fermetrar. Hver lóð býður upp á möguleika fyrir tvær íbúðir og nam verðið fyrir hverja ljóð 13 milljónum króna.

Kaupandi lóðanna er Sýrfell ehf. og gerir eigandi þess ráð fyrir að framkvæmdir á lóðunum geti hafist innan tveggja ára.

Af lóðum í grónum hverfum sem Reykjavíkurborg var með í sölu er aðeins ein lóð eftir og er hún staðsett við Lambasel 38.