Það virðist ljóst að sögu Selfossapóteks sé endanlega lokið. Fyrirtækið verður formlega afmáð úr fyrirtækjaskrá samkvæmt beiðni stjórnar Kaupfélags Árnesinga. Engin starfsemi hefur verið undanfarin ár undir formerkjum Selfossapóteks en ekki hefur félagið verið afmáð úr fyrirtækjaskrá. Skattstofan á Hellu hefur staðfest enga starfsemi fyrirtækisins um langt skeið og virðist því sem félagið verði afmáð á næstunni.

Kaupfélag Árnesinga rak á sínum tíma verslun, apótek, bakarí, hótel og fleira á Selfossi en aðrir aðilar þjónusta nú íbúa svæðisins.