Qatar Holding LLC seldi alla hluti sína í OMX AB í vikunni, að því er fram kom í kauphallartilkynningu á þriðjudag.

Qatarhópurinn átti 10% í fyrirtækinu og hafði gert tilraun til að kaupa allt hlutafé þess í desember, en hefur nú ákveðið að draga sig út úr slagnum um yfirtökuna, en Qatarhópurinn er ekki einn um hituna.

Í janúar var tilkynnt að sameiginleg yfirtaka Nasdaq og Borse Dubai yrði framkvæmd á yfirstandandi fjórðungi.