JPMorgan Cazenove er að selja 22% hlut Kaupthings Singer & Friedlander í matvælaheildsölukeðjunni Booker Group. Þetta kemur fram í frétt Bloombergs. Ekki kemur fram hvort búið sé að finna kaupanda.

Markaðsvirði keðjunnar er um þessar mundir um 457 milljónir punda.

Baugur átti áður hlut í Booker en seldi hann um mitt síðasta ár. Meðal kaupenda var Kaupthing Capital Market, viðskiptaþjónustu Kaupþings í Bretlandi, sem var að 70% í eigu Singer & Friedlander og 30% í eigu starfsfólks.