Framtakssjóðurinn seldi í gær allt hlutafé sitt í olíuversluninni N1. Sjóðurinn átti rétt rúmlega 209 þúsund hluti eða 20,9% hlut, að því er fram kom í tilkynningu sjóðsins. Fram kemur í flöggun að hlutabréfin voru seld á genginu 17 krónur á hlut eða fyrir 3.553 milljónir króna.

Gengi hlutabréfa N1 stendur nú í 16,55 krónum á hlut.