Ægir Birgisson, eiginmaður Auðar Bjarkar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs VÍS hefur selt 4 milljónir hluta í fyrirtækinu á 9,46 krónur hlutinn. Gerir það rúmlega 37,8 milljónir króna, en Auður Björk á enn 188.962 hluti í félaginu.

Í tilkynningu um viðskiptin til kauphallarinnar kemur fram að um er að ræða uppgjör á framvirkum samningi sem er á gjalddaga í dag og það fari fram með skuldajöfnun milli aðila.