Icelandic Trademark Holding, eigandi vörumerkjanna ´Icelandic´ og ´Icelandic Seafood´ og Margildi ehf. hafa skrifað undir leyfissamning um markaðssetningu og sölu á fiskolíum undir vörumerkinu ´Icelandic Fish Oil´ í Bandaríkjunum. Áætlað er að sala og dreifing hefjist síðar á árinu að því er kemur fram í fréttatilkynningu..
Margildi sérhæfir sig í framleiðir lýsi úr íslenskum uppsjávarfiski. Icelandic Trademark Holding ( ITH )er eigandi og þjónustuaðili vörumerkjanna „Icelandic” og „Icelandic Seafood”.
„Við erum mjög spennt fyrir samstarfinu við Margildi og að markaðssetja þeirra hágæðaafurðir undir okkar sterka vörumerki Icelandic. Vaxandi áhugi á neytendamarkaði fyrir Íslandi og íslenskum vörum hefur fært okkur stóraukin sóknarfæri og slíkur áhugi hjálpar fyrirtækjum að vera með vörumerki og umbúðir sem vísa sterkt í íslenskan uppruna“ er haft eftir Herdísi Fjeldsted, stjórnarformanni Icelandic Trademark Holding í tilkynningunni en hún segir einnig að lýsismarkaður sé yfir 1,2 billjónir dollara á ári.
Þá vinnur Margildi í samstarfi við nokkur íslensk fyrirtæki að þróun hollra matvæla sem innihalda Omega-3 úr lýsinu og má þar m.a. nefna ferskt pasta, viðbit úr smjöri, skyr, smúðinga, íslenska repjuolíublöndu, brauð, hummus, hnetusmjör, fiski- og grænmetisbuff o.fl.
„Framtíðin er björt og spennandi tímar framundan þar sem það verður styrkur og jafnframt skemmtilegt að geta vísað beint til íslensks uppruna okkar framleiðsluvara í vörumerkinu sjálfu.“ er einnig haft eftir Snorra Hreggviðssyni, framkvæmdastjóri Margildis.