Breska félagið Domino‘s Pizza Group, móðurfélag Pizza-Pizza, rekstrarfélags Domino‘s á Íslandi, mun kaupa 4,7% eignarhlut Birgis Arnar Birgissonar, forstjóra hins síðarnefnda félags, og Steinars Braga Sigurðssonar, og eignast þar með félagið að fullu. Fréttablaðið segir frá .

Þetta kemur til vegna nýtingar þeirra Birgis og Steinars á sölurétti á hendur breska félaginu, í tengslum við kaup þess á 51% hlut árið 2016, og 44,3% hlut til viðbótar ári seinna.