Icelandair Group hefur gert samning við Berjaya, eiganda að meirihluta í Icelandair Hotels, um sölu félagsins á 25% eftirstandandi hlut í hótelfélaginu. Söluverðið er um 440 milljónir króna (3,4 milljónir Bandaríkjadala) og kemur til greiðslu við afhendingu hlutarins og þegar skilmálar samningsins hafa verið uppfylltir. Í kjölfar kaupanna mun hótelfélagið hefja vinnu við breytingu á nafni og vörumerki hótelanna og hætta notkun Icelandair vörumerkisins þegar fram líða stundir.

Malasískt fjárfestingafélagið Berjaya keypti 75% í Icelandair Hotels á síðasta ári en nú hefur verið lokið kaupum á afgangnum af félaginu.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Sala á eftirstandandi hlut okkar í Icelandair Hotels er í takt við stefnu Icelandair Group að einbeita okkur á kjarnastarfsemi félagsins, flugrekstri og tengdri starfsemi. Ég vil þakka öllu starfsfólki Icelandair Hotels fyrir samvinnuna í gegnum árin við uppbyggingu hágæða hótela á Íslandi sem hefur verið mikilvægt framlag í að styrkja innviði ferðaþjónustunnar á Íslandi og bæta upplifun ferðamanna. Ég hef mikla trú á því að Ísland verði áfram eftirsóttur áfangastaður þegar faraldrinum lýkur og að Icelandair Hotels haldi áfram að vera í lykilhlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér á landi á næstu árum. Ég vil þakka Berjaya fyrir gott samstarf og óska þeim og Icelandair Hotels alls hins besta í framtíðinni.”

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels:

„Þessi breyting er í takt við þau áform sem þegar lágu fyrir um aðgreiningu flugs og hótelreksturs samstæðunnar, og við hjá hótelunum því vel undir þetta búin og tilbúin til að takast á við nýja tíma. Við búum að góðri þekkingu og reynslu af bæði endurnýjun eldri vörumerkja sem og því að innleiða ný hótelvörumerki inn í okkar rekstur, og sú reynsla mun án efa nýtast okkur vel í þeim verkefnum sem framundan eru. Heimsmyndin er gjörbreytt og ferðaþjónusta um allan heim mun þurfa að ganga í gegnum endurnýjun lífdaga þá loks að COVID faraldrinum léttir. Við höfum nýtt tímann vel undanfarið í endurskipulagningu okkar reksturs sem og til undirbúnings á þeirri vegferð sem lá fyrir að væri framundan. Við hlökkum til aukins samstarfs við nýja eigendur í Malasíu, og erum þakklát öllu því góða fólki sem við höfum unnið með að uppbyggingu ferðaþjónustu hjá Icelandair Group til fjölda ára. Við ætlum áfram að vera leiðandi í hótelrekstri á Íslandi, og það verður spennandi að kynna þær nýjungar sem endurmörkun rekstrarins mun innibera.“

Fréttin verður uppfærð.