Íslensk verðbréf héldu útboð á skuldabréfum fyrir Akureyrarbæ síðastliðinn þriðjudag. Um að ræða skuldabréf í stækkuðum skuldabréfaflokki sveitarfélagsins, AKU 10 1.

Alls bárust tilboð að nafnverði 1,45 milljarðar króna með ávöxtunarkröfu á bilinu 3,10% til 3,30%. Samþykkt tilboð námu að nafnverði 620 milljónum króna á ávöxtunarkröfunni 3,18%. Heildarstærð flokksins eftir stækkun er 5,76 milljarðar króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Íslenskra verðbréfa. Gert er ráð fyrir að nýútgefin skuldabréf verði tekin til viðskipta í Kauphöll Íslands mánudaginn 28. september næstkomandi.