Selma Grétarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu gæðastjóra hjá Póstinum og hefur þegar tekið til starfa. Helstu hlutverk Selmu er að halda utan um gæðakerfi Póstsins, þar sem ferlastjórnun er í fyrirrúmi til að tryggja samræmd vinnubrögð, efla tengingar við innri og ytri kröfur og bera kennsl á veikleika og frávik svo bregðast megi við í tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Selma hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og starfaði síðast hjá Skattinum sem sérfræðingur á tollasviði þar sem hún sinnti meðal annars þróun ferlastjórnunar og gæðakerfis tollamála ásamt því að verkefnastýra fjölbreyttum verkefnum, þá tók hún virkan þátt í stefnumótunarvinnu og innleiðingu á stefnu tollamála. Áður hafði hún til dæmis starfað hjá sendiráði Íslands í Danmörku og hjá Iceland Express. Selma er með MS próf í landfræði frá Kaupmannahafnaháskóla og BS próf í landfræði og ferðamálafræði frá Háskóla Íslands.

„Það er skemmtilegt að ganga til liðs við Póstinn en fyrirtækið hefur greinilega breyst mikið á undanförnum árum. Það er mikill metnaður fyrir því að bæta starfsemi fyrirtækisins enn frekar og ég hlakka mikið til að takast á við þær áskoranir sem eru framundan. Gæðamál eru mikilvægur þáttur í rekstri félagsins og ég veit að það bíða mín fjölbreytt og skemmtileg verkefni. Það eru fullt af tækifærum til að bæta fyrirtækið og þjónustuna enn frekar og ég er fullviss um að við munum ná frábærum árangri í sameiningu," segir Selma Grétarsdóttir í tilkynningunni.

„Ég er mjög ánægður með að fá Selmu til liðs við okkur, hún hefur yfirgripsmikla reynslu og ég veit að hún á eftir að reynast okkur vel í því sem framundan er. Gæðamál spila stórt hlutverk hjá okkur og við höfum mikinn metnað fyrir því að ná góðum árangri og skila sendingum hratt og vel til viðskiptavina okkar. Það að fá Selmu til liðs við okkur á þessum tímapunkti skiptir miklu máli en hún mun hjálpa okkur að ná enn betri árangri þegar kemur að gæðamálum og hefur einnig fjölbreytta þekkingu sem mun reynast okkur vel á öðrum sviðum," segir Héðinn Gunnarsson forstöðumaður umbóta og þróunar hjá Póstinum í tilkynningunni.