Bæjarstjórn Seltjarnarness hefur náð saman um nýjar forsendur fjárhagsáætlunar bæjarins á komandi ári í ljósi breyttra aðstæðna í efnahagslífinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ.

Á fundi sínum í gær ákvað bæjarstjórnin meðal annars að gjaldskrár leikskóla, grunnskóla, heilsdagsskóla og almennrar velferðarþjónustu verða ekki hækkaðar.

Engin hækkun verður á álagningarhlutfalli útsvars, nú 12,10%, né fasteignagjalda. Þá verður afsláttur á fasteignagjöldum óbreyttur.

Þá stendur ekki til að fækka starfsfólki eftir því sem fram kemur í tilkynningunni.

„Markmið aðgerða bæjarstjórnar er að nýta fjárhagslegan styrk bæjarins til að standa vörð um lífsgæði og þjónustu við bæjarbúa og starfsöryggi þeirra sem starfa í þágu Seltjarnarnesbæjar,“ segir í tilkynningunni.

Gert er ráð fyrir að launaliðir hækki um 5% í ljósi væntanlegra kjarasamninga.

„Engin áform eru um uppsagnir starfsfólks, en dregið verður úr nýráðningum eftir aðstæðum,“ segir í tilkynningunni.

Ekki er gert ráð fyrir hækkun á öðrum rekstrarliðum. Fjárheimildir sviða verða að jafnaði ekki auknar á árinu 2009 en rekstrarútgjöld endurskoðuð með því markmiði að ná fram sparnaði og samhæfingu í rekstri málaflokka.

Þá er gert ráð fyrir 8 % lækkun útsvarstekna miðað við árið 2008 vegna samdráttar í þjóðfélaginu.

Einnig er gert ráð fyrir 5% lækkun á ávöxtun peningalegra eigna Seltjarnarnesbæjar „vegna væntrar lækkunar stýrivaxta Seðlabanka Íslands á komandi ári,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

Ekki er gert ráð fyrir breytingum á fasteignamati íbúðarhúsnæðis á Seltjarnarnesi en 10% lækkun á fasteignamati atvinnuhúsnæðis.

Þá kemur fram að forgangsröðun framkvæmda verður endurskoðuð og verkefnum, sem til að mynda geta beðið uns úr rætist, frestað eða kostað enn frekar kapps um að draga úr kostnaði þeirra.