Knattspyrnugoðsögnin Pelé hefur sett á sölu bikar sem Knattspyrnusamband Íslands færði honum í tilefni af fyrstu heimsókn hans til landsins árið 1991. Er bikarinn til sölu á uppboðsvefnum Ebay. Þetta kemur fram á vef mbl.is í dag.
Ekki er um að ræða einstaka sölu þar sem Péle hóf fyrr á þessu ári að selja ýmsa muni tengda knattspyrnuferli sínum í gegnum Julien’s-uppboðshúsið í London. Upp sett verð á bikarnum góða frá KSÍ er um 353.000 íslenskar krónur.