Magnús B. Jónsson, framkvæmdastjóri Iceland Seafood Iberica, seldi hlutabréf í Iceland Seafood International hf. fyrir 12,7 milljónir króna í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallirnar.
Í síðustu viku keypti Magnús 2,35 milljónir hluta í félaginu á genginu 5,4 krónur fyrir um 12,7 milljónir króna sem er jafnframt sama upphæð og hann seldi fyrir í dag. Söluhagnaðurinn af þessum viðskiptum er því um 8,7 milljónir króna.
Hann seldi 735 þúsund hluti í félaginu á genginu 17,3 krónur. Eftir kaupin á hann 1,6 milljónir hluta í félaginu að verðmæti tæplega 28 milljóna króna sé miðað við sölugengi bréfanna í þessum viðskiptum. Auk þess á hann kauprétt að 7,65 milljónum hluta.