Fjárfestingafélagið Novator , sem er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur samþykkt kauptilboð í pólska fjarskiptafyrirtækið Play . Kaupandinn er franska fjarskiptafyrirtækið Iliad Group , sem í kjölfarið gerir öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Novator .

Gengi viðskiptanna er tæplega 39% hærra en lokagengi Play var í pólsku kauphöllinni á föstudaginn. Miðað við það er markaðsvirði hlutafjár Play metið á 2,2 milljarða evra og hlutur Novator því 440 milljónir evra eða ríflega 71 milljarðar króna.

Novotor kom að stofnun Play árið 2005, í gegnum eignarhaldsfélagið P4 . Félagið var þá valið í útboði pólska ríkisins til að hafa umsjón með uppbyggingu 3G fjarskiptakerfisins í Póllandi. Frá stofnun Play var félagið í harðri samkeppni við fjarskiptarisa á borð við T - Mobile , Orange og Plus , sem þá var í eigu Vodafone og TeleDanmark . Árið 2007 keypti félagið 400 sölustaði í Póllandi og sama ár eignaðist Novator meirihluta í félaginu. Vöxtur Play var hraður og félagið markaði sér fljótt sterka markaðsstöðu. Félagið var skráð á markað í Kauphöllinni í Varsjá árið 2017.

Novator hefur leitt uppbyggingu fjarskiptafélagsins í samstarfi við aðra fjárfesta á þeim 15 árum sem liðin eru frá stofnun þess, byggt upp sterka innviði og tekið þátt í hraðri tækniþróun á fjarskiptamarkaði. Play er í dag stærsta fjarskiptafélag Póllands með yfir fimmtán milljónir viðskiptavina og 28% markaðshlutdeild.

Í tilkynningu segir að Novator hafi sérhæft sig í fjárfestingu og uppbyggingu á fyrirtækjum sem hafa þá eiginleika að vera brautryðjendur á markaði, til dæmis á fjarskiptamarkaði. Til viðbótar við stofnun og rekstur Play kom Novator að stofnun Nova á Íslandi, WOM í Chile og vinnur nú að uppbyggingu WOM í Kólumbíu.

Horfum núna til Suður-Ameríku

„Það var markmið okkar með stofnun Play fyrir 15 árum að byggja upp öflugt fjarskiptafyrirtæki sem myndi bjóða neytendum í Póllandi upp á góða þjónustu, samkeppnishæft verð og nýjungar á markaði," er haft eftir Björgólfi Thor í tilkynningunni. „Það hefur gengið eftir og Play er í dag stærsta fjarskiptafyrirtæki landsins og verður hluti af sjötta stærsta símafyrirtæki Evrópu eftir kaup Iliad . Við erum stolt af fjárfestingunni og þeim árangri sem félagið hefur náð undir okkar stjórn síðastliðin 15 ár. Nú er þessum mikilvæga kafla lokið og við nýtum reynsluna til uppbyggingar á öðrum mörkuðum. Í því sambandi horfum við núna til Suður-Ameríku þar sem tækifæri er til að skapa sér stöðu á fastmótuðum mörkuðum.“