Vegna gríðarlegs samdráttar í sölu sements síðustu ár og mikillar óvissu um stöðu byggingariðnaðarins næstu misseri hefur Sementsverksmiðjan á Akranesi ákveðið að hætta sementsframleiðslu ef aðstæður breytst ekki verulega á næstu tveimur árum. Í tilkynningu fyrirtækisins kemur fram að þess í stað muni verksmiðjan hefja innflutning frá norska framleiðandanum Norcem AS sem er einn eigenda Sementsverksmiðjunnar. Til standi  að flytja sement til hafna á Akranesi og Akureyri.

"Stjórnendur Sementsverksmiðjunnar hafa, allt frá efnahagshruninu haustið 2008, gripið til margvíslegra aðgerða og skipulagsbreytinga með það að markmiði að viðhalda sementsframleiðslu í landinu. Þær aðgerðir hafa ekki dugað til og engar vísbendingar eru um verulegan viðsnúning á næstunni. Ef aðstæður breytast og eftirspurn eftir sementi eykst verulega á næstu misserum munu stjórnendur Sementsverksmiðjunnar endurskoða þessa ákvörðun. Fyrirhugaðar breytingar leiða óhjákvæmilega til fækkunar starfsfólks þar sem framleiðsludeild verksmiðjunnar verður lögð niður ásamt stoðdeildum. Nemur fækkunin nú níu manns. Á þessu ári framleiddi verksmiðjan sement í rúma þrjá mánuði og er allt lagerrými hennar á Akranesi nú fullt. Það hráefni sem verksmiðjan á nú þegar verður notað til sementsframleiðslu snemma á næsta ári og að óbreyttu lýkur þá sementsframleiðslu á Akranesi," segir í tilkynningunni.