Neytendastofa hefur samið drög að nýjum reglum um verðmerkingar þar sem sameinaðar eru reglur um verðmerkingar og reglur um mælieiningarverð.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu en ákvæði um verðmerkingar á þjónustu hafa hins vegar verið fjarlægð úr verðmerkingarreglum og er því áætlað að gefa út sérstakar reglur um verðmerkingar á þjónustu. Neytendastofa hefur sent drög að reglunum til umsagnar nokkurra hags- munaaðila.