Bjarni Þorvarðarson, forstjóri Coripharma.
Bjarni Þorvarðarson, forstjóri Coripharma.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Coripharma hefur samið við þýska lyfjafyrirtækið STADA um að pakka um 700 milljónum taflna af lyfjum árlega.  Samningurinn er til þriggja ára og er heildarverðmæti hans um 12 milljónir evra (um 1,6 milljarðar íslenskra króna).

Lyfin tvö sem um ræðir, atorvastatin og enalapril, eru framleidd í verksmiðju þýska fyrirtækisins en þeim verður pakkað í lyfjaverksmiðju Coripharma í Hafnarfirði. Þaðan fara þau á markað í fjölmörgum Evrópulöndum undir merkjum STADA, m.a. á Íslandi og hinum Norðurlöndunum, og á stærstu markaði Evrópu eins og Þýskaland, Frakkland, Spán, Ítalíu og Holland.

Coripharma sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og pökkun samheitalyfja, sem það selur til annarra lyfjafyrirtækja um allan heim. STADA er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Bad Vilbel, skammt frá Frankfurt í Þýskalandi, en félagið selur lyf í um 120 löndum. Salan nam yfir 2 milljörðum evra á árinu 2018. Hjá Stada starfa um 10.400 manns.

Bjarni K. Þorvarðarson, forstjóri Coripharma: „Pökkunin fer af stað núna í desember. Þetta stóra verkefni gerir okkur kleift að fjölga starfsfólki fyrr en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir, bæði á framleiðslusviði og í gæðaeftirliti.“

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá keyptu fyrrverandi starfsmenn Actavis og fjárfestar keyptu lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði 2018 og lyfjaþróun Actavis í Hafnarfirði í maí 2019, fyrir 826 milljónir króna .