Skrifað hefur verið undir samning vegna smíði á 81,30 metra löngum 17 metra breiðum frystitogara fyrir HB Granda við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armon Gijon. Í frétt á vefsíðu HB Granda segir að samningsverðið sé ríflega 44,3 milljónir evra eða jafnvirði 4,9 milljarða íslenskra króna.

Gert er ráð fyrir að afhending togarans verði um mitt ár 2019, og stefnt er að því að skipið verði þá stærsti og fullkomnasti flakafrystitogarinn sem gerður verður út við norðanvert Atlantshaf. Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, skrifaði undir samninginn af hálfu félagsins síðastliðinn föstudag. Byrjað verður á smíði skipsins um miðjan september þannig að smíðatíminn verður tæplega tvö ár.

Haft er eftir Rafni Haraldssyni verkefnisstjóra hjá HB Granda að skipið, sem verður um 5.000 brúttótonn að stærð, hannað af Rolls-Royce sem m.a. á Hydraulic Brattvaag í Noregi. Hönnun þess tekur mið af orkusparnaði bæði á veiðum og á siglingu og verður skrúfan 4,00 metrar í þvermál. Aðalvélin verður af gerðinni Bergen-Diesel og er afl hennar 5400 kW. Skipið verður búið öflugu rafvindukerfi frá Rolls-Royce og verður rafmagn fyrir vindurnar og annan búnað framleitt með ásrafali. Fullkomnasti búnaður til flökunar og frystingar verður í skipinu og er framleiðslugetan áætluð rúm 100 tonn á sólarhring. Þá verður fiskmjölsverksmiðja um borð fyrir ýmislegt sem fellur til við flakavinnsluna og verður afkastageta hennar um 50 tonn á sólarhring. Í frystilestum verður rými fyrir allt að 1.000 tonn af afurðum, flokkuðum á brettum.