Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur til Reykjavíkur í dag til að ræða fjórðu endurskoðun efnahagsáætlunarinnar við stjórnvöld. Dvöl nefndarinnar stendur til 15. nóvember

Að loknum viðræðum stendur til að halda blaðamannafund, að því er segir í tilkynningu frá Franek Rozwadowski, sendifulltrúa AGS á Íslandi.