Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun síðar í dag eiga fund með sendinefnd frá Katar.

Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu segir að sendinefndin komi til landsins í framhaldi af opinberri heimsókn forseta Íslands til Katars í janúar síðastliðnum og í tengslum við fundi sem forsetinn átti með Amírnum, þjóðhöfðingja Katars, í síðasta mánuði.

Sendinefndin mun einnig eiga fundi með Össuri Skarphéðinssyni iðnaðarráðherra og heimsækja íslensk orkufyrirtæki og fjármálastofnanir, kynna sér starfsemi fyrirtækja á sviði orkusparnaðar og baráttunnar gegn mengun og kynna sér rannsóknir í líftækni.

Sendinefndina skipa, auk sendiherra Katars á Íslandi, forstjóri Qatar Petroleum International sem er helsta fyrirtæki ríkisins á sviði orkuframleiðslu og fulltrúar Qatar Investment Authority sem er fjárfestingastofnun ríkisins og Qatar Science and Technology Park sem tengist Qatar Foundation en sú stofnun hefur forystu á sviði tækni, vísinda og mennta í Katar.

Leiðtogar Katars hafa mikinn áhuga á hátækni og sjálfbærri orkuframleiðslu. Þeir vilja kynna sér hvaða árangri Íslendingar hafa náð á þessum sviðum og kanna möguleika á frekari samvinnu.