Sendiráð Bandaríkjanna færði í dag Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands veglega bókagjöf um alþjóðamál.

Þetta er í þriðja sinn sem stofnunin og nemendur taka við bókagjöf frá sendiráðinu. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið bandarísku kosningarnar frá fræðilegu sjónarmiði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþjóðamálastofnun.

Þar kemur fram að vorið 2006 gaf sendiráð Bandaríkjanna Alþjóðamálastofnun tæplega tvö hundruð bækur um alþjóðamál, öryggis- og varnarmál. S

íðan hefur verið bætt við nýútkomnum fræðibókum á þessu sviði á hverju hausti. Fræðimenn við Háskóla Íslands velja bækurnar til að þær nýtist sem best við kennslu og rannsóknir við háskólann.

Landsbókasafn-Háskólabókasafn hýsir bókakostinn og er aðgangur að honum öllum leyfður.

Líta má á bókagjöfina sem lið í því að efla Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands sem miðstöð innlendra rannsókna á sviði alþjóðamála, öryggis- og varnarmála en góður bókakostur er undirstaða þess að hægt sé að stunda markvissa rannsókna- og heimildavinnu á þessu sviði.

Bókagjöfin styrkir einnig meistaranám í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og þau fjölmörgu námskeið sem boðið er upp á við háskólann um alþjóðamál bæði í grunn- og framhaldsnámi.