Sendiskrifstofur Íslands munu hafa milligöngu um ráðgjöf og aðstoð við Íslendinga erlendis vegna aðstæðna aðstæðna á fjármálamarkaði hérlendis.

Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneyti kemur fram að utanríkisráðuneyti hefur í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið unnið að úrræðum til að bregðast við vanda ÍSlendinga erlendis, sem hafa átt í vandræðum með að nálgast fjármuni sína af íslenskum reikningum.

Þeim sem eiga í erfiðleikum með að nálgast fjármuni sína er því bent á að snúa sér til næstu sendiskrifstofu Íslands, en upplýsingar um hvar hana er að finna má sjá á vefsíðu utanríkisráðuneytisins.