Embætti sérstaks saksóknara hefur endursent gjaldeyrisbrotamál tengt útgerðarfyrirtækinu Samherja til Seðlabanka Íslands. Þessu greinir DV frá.

Seðlabanki Íslands sendi Samherjamálið til sérstaks saskóknara í apríl síðastliðnum en málið hafði þá veri til rannsóknar hjá stofnuninni síðan í mars 2012. Þessi niðurstaða þýðir að sérstakur saksóknari telur að kæruefnin frá Seðlabankanum hafi ekki þótt líkleg til sakfellingar, eins og þau koma fyrir í kæru Seðlabankans. .

DV segir að Seðlabanki Íslands geti unnið kæruna betur og sent hana svo aftur til sérstaks saksóknara.