Meint markaðsmisnotkun Landsbankans, lánveitingar bankans til þriggja félaga og Sigurðar Bollasonar til kaupa á hlutabréfum í bankanum, kaup Landsbankans á lánasafni Landsbankans í Lúxemborg og kaup bankans á hlutabréfum af félögum í eigu Landsbankans eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Húsleitir voru gerðar á þremur stöðum í dag vegna málanna.

Fréttatilkynning frá embætti sérstaks saksóknara:

„Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á kaupum Landsbanka Íslands á hlutbréfum útgefnum af bankanum og lánveitingum bankans til hlutabréfakaupa fóru fram húsleitir á þremur stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu. Sjö manns voru á sama tíma færðir til skýrslutöku. Nánar tiltekið eru til rannsóknar eftirgreind mál:

  • 1.      Meint markaðsmisnotkun Landsbanka Íslands með hlutabréf útgefin af bankanum.
  • 2.       Lánveitingar til félaganna Hunslow S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partnes Corp og Sigurðar Bollasonar ehf. til kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum.
  • 3.      Kaup Landsbanka Íslands á lánasafni Landsbankans í Luxemburg.
  • 4.      Kaup á hlutabréfum í bankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna Landsbankans og         lánveitingar til þeirra félaga.

Til rannsóknar er grunur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum bankans og brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Um er að tefla verulega fjárhagslega hagsmuni og rannsóknin tengist fjölda manns og fjölmörgum tilvikum. Málunum var vísað til embættis sérstaks saksóknara með kærum frá Fjármálaeftirlitinu á síðasta ári  en málin hafa verið til meðferðar síðan.

Aðgerðirnar í dag hafa um nokkurt skeið verið í undirbúningi og tóku 30 starfsmenn embættisins þátt í þeim.

Úrskurðir til leitar voru kveðnir upp við Héraðsdóm Reykjavíkur. Yfirheyrslur hófust í morgun og er þess að vænta að þær standi fram á kvöld.“