Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari sem rannsakar mál tengd bankahruninu, hafnar því að upplýsingar leki af skrifstofu sérstaks saksóknara til fjölmiðla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi vegna umræðu um meintan leka rannsóknargagna frá embættis sérstaks saksóknara.

„Sérstakur saksóknari hafnar því að rannsóknargögnum sé „lekið“ í fjölmiðla af hálfu starfsmanna hans enda hefur ekkert komið fram sem bendir til þess,“ segir í tilkynningunni.

„Sérstakur saksóknari og aðrir rannsóknaraðilar hafa síður en svo hag af því að rannsóknarupplýsingar séu birtar í fjölmiðlum.“

Ólafur bendir á að gögn um rannsóknir hafi verið afhent verjendum sakborninga í málum sem eru til rannsóknar við embættið. Þetta sé í samræmi við ákvæði laga um meðferð sakamála.

„Meginregla um afhendingu gagna til verjenda er að finna í  1. mgr. 37. gr. þeirra laga en samkvæmt henni skal verjandi jafnskjótt og unnt er fá afrit af öllum skjölum máls sem varða skjólstæðing hans. Ákvæðið nær einnig til mála sem eru á rannsóknarstigi,“ segir í tilkynningunni.

„Af þessu leiðir að starfsmenn embættisins eru ekki einu aðilarnir sem aðgang hafa að rannsóknargögnunum mála eftir að skjöl hafa verið afhent verjendum. Þegar verjandi hefur fengið aðgang að gögnum máls þá er honum heimilt að láta skjólstæðingi sínum í té eintak af þeim eða kynna honum þau með öðrum hætti.“

Þá segir í lokin að sá greiði aðgangur sem lög veiti verjendum að gögnum máls á meðan á rannsókn stendur gerir það að verkum rannsóknargögn geta farið víðar án þess að embætti sérstaks saksóknara geti spornað við því.