Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur heldur úti sumarvef ÍTR þar sem eru upplýsingar um það sumarstarf sem er í boði fyrir börn og unglinga á aldrinum 5-18 ára. Það eru sumarfrístund, siglingar, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið, leikjanámskeið og margt fleira. Skráning í sumarstarfið fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.
Skráning í sumarfrístund, sumarstarf frístundaheimilanna, fyrir börn sem eru að ljúka 1.–4. bekk grunnskóla hefst einnig í dag í gegnum Rafræna Reykjavík, svo og skráning á siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst sama dag.
Í tilkynningu frá Reykjavík segir að frístundamiðstöðvarnar í borginni muni auk sumarfrístundar bjóða upp á smiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk og félagsmiðstöðvarnar verða með sumaropnun fyrir unglinga sem voru í 8.–10. bekk í vetur. Skráning í smiðjur fyrir 10-12 ára börn hefst 15. maí og fer hún einnig fram á Rafrænni Reykjavík.