Embætti sérstaks saksóknara hefur vísað frá kæru á hendur Róberti Wessman og Árna Harðarsyni. Kæran var lögð fram af Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna ætlaðra auðgunarbrota Róberts og Árna þegar þeir störfuðu sem forsvarsmenn Salt Investments. Voru þeir vændir um að taka fjármuni „traustataki," eins og segir í kæru og stefnu sem var lögð fram samhliða til höfðunar skaðabótamáls á hendur tvímenningunum.

Viðskiptablaðið greindi frá málinu þann 27. og 28. ágúst . Sérstakur saksóknari vísaði kærunni frá þann 28. nóvember síðastliðinn. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort Björgólfur Thor hyggist kæra frávísun til ríkissaksóknara, en kærufrestur rennur út mánuði frá því að hann fékk vitneskju um kæruna. Í fyrsta lagi mun kærufresturinn því renna út þann 28. desember næstkomandi.

Sakaðir um að taka fjármuni traustataki

Í stuttu máli er málavöxtum lýst þannig í kæru að forstöðumenn Salt Investments, Róbert Wessman og Árni Harðarson, hafi fært fjórar milljónir evra sem voru í eigu Mainsee 516 af reikningi Actavis, sem hafði fjármunina í vörslu, inn á reikning Salt Investments, án samráðs eða samþykkis stjórnar eða eigenda Mainsee 516.

Þeir Róbert og Árni hafi síðan nýtt fjármunina í eigin þágu og á sama tíma komið fjármununum frá því að vera fullnustaðir af Glitni banka, sem hafi lánað Mainsee 516 peningana til kaupa á lager af lyfjum. Björgólfur hafi þannig orðið fyrir fjártjóni vegna þess að hann hafði undirgengist sjálfskuldaraábyrgð ásamt Róberti og þurft að standa skil á hærri fjárhæð en ella, ef peningarnir hefðu ekki verið teknir „traustataki" af Róberti eins og segir í kærunni.

Málið tilhæfulaust með öllu

„Eins og við var að búast var málinu vísað frá enda málið tilhæfulaust með öllu," segir Halldór Kristmannsson í tölvupósti sem barst Viðskiptablaðinu. Hann hefur gætt hagsmuna Róberts í málinu. „Það er enginn fótur fyrir þessu máli eins og tíminn mun leiða í ljós," segir hann.

Athygli vakti að þegar Róberti varð kunnugt um kæru Björgólfs til Sérstaks saksóknara sendi hann honum svokallaða ísfötuáskorun:

Ísfötuáskorun til Björgólfs Thors Björgólfssonar

Enn og aftur fara spunameistarar Björgólfs Thors Björgólfssonar af stað og í þetta skiptið er sett fram tilefnislaus stefna sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Björgólfur Thor er oft hugmyndaríkur þegar kemur að því að spinna sögur og í þetta skiptið fer hann af stað með málatilbúnað sem hefur það eina markmið að þeyta ryki í augu almennings. Þetta virðist einnig vera hluti af stöðugri varnarbaráttu Björgólfs Thors á Íslandi þar sem hann ver skaddað mannorð sitt. Ég vill nota tækifærið og skora á Björgólf Thor  að fara í ísfötubað, enda virðist hann þurfa smá kælingu. Þannig má líka komast hjá því að eyða tíma og fjármunum dómstóla í að fjalla um tilhæfulaus mál.

Þann 25.apríl 2012 gerði ég og Salt investment dómsátt við Björgólf Thor (félög hans) sem fól í sér að máleferlum aðila myndu ljúka.   Allir ættu að þekkja niðurstöðu þeirra mála, þar sem Novator var gert að greiða 40 milljónir evra en innheimta þeirra fjármuna reyndist árangurslaus. Þrátt fyrir að dómsáttin hafi verið Björgólfi Thor mjög hagstæð virðist sem hann sé gjörsamlega friðlaus í þessu máli og er greinilega mikið um að halda áfram deilum við mig.

Ég ætla mér ekki munnhöggvast við Björgólf í fjölmiðlum um þetta mál en það verður áhugavert að mæta honum í dómsal þar sem gerð verður ítarleg grein fyrir málavöxtum og þessum aðdróttunum svarað. Ég á hinsvegar ekki von á öðru en að málinu verði vísað frá, enda tilhæfulaust með öllu.

Róbert Wessman