Þeir sem hafa rétt til munu geta nýtt sér höfuðstólslækkun með séreignarsparnaði hvort sem þeir eru með séreignarlífeyrissparnað nú þegar eða ekki. Þetta er meðal þess kemur fram á vefsíðu sem sett var í loftið þegar skuldaleiðréttingatillögurnar voru kynntar.

Ítarlegt kynningarefni var sett upp á vefslóðinni http://skuldaleidretting.is . Þar er meðal annars síðan " Spurt og svarað " þar sem finna má svör við ýmsum algengum spurningum sem vaknað geta varðandi aðgerðaáætlunina.