Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til stjórnar Icelandair Group, á hluthafafundi sem haldinn verður miðvikudaginn 15. september nk, kl 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica.

Hluthafafundur skal kjósa 5 aðalstjórnarmenn og 3 til varastjórnar.

Frambjóðendur til aðalstjórnar eru Auður Finnbogadóttir, Finnbogi Jónsson, Friðrik Ásmundsson Brekkan,  Katrín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helgason og Úlfar Steindórsson.

Þau Sigurður, Katrín Olga eru fyrir í stjórn Icelandair Group en Sigurður er stjórnarformaður. Aðrir munu koma nýir inn í stjórn.

Þá eru kosnir þrír einstaklingar í varastjórn þannig að sjálfkjörnir í varastjórn eru: Herdís Dröfn Fjeldsted, Magnús Magnússon og Vilborg Lofts.