Heildarveltan á fasteignamarkað, frá 16. nóvember til og með 22. nóvember 2007, var 5.920 milljónir króna og meðalupphæð á samning 32,3 milljónir króna, samkvænt upplýsingum á heimasíðu Fasteignamati ríkisins.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 16. nóvember til og með 22. nóvember 2007 var 183. Þar af voru 139 samningar um eignir í fjölbýli, 33 samningar um sérbýli og 11 samningar um annars konar eignir.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli og 4 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 243 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.

Átta samningum var þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 168 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21 milljón króna.